top of page

Bland.is x Frágangur

Öruggari ökutækjaviðskipti
á netinu

Það er að mörgu að huga þegar kemur að viðskiptum með ökutæki og margt sem getur farið úrskeiðis ef ekki er vandað til verka. Frágangur hefur pakkað öllum þeim skrefum sem þarf að framkvæma í eina frábæra, rafræna þjónustu sem klárar allt fyrir bæði kaupanda og seljanda hratt og örugglega.

Kaupandi eða seljandi getur hafið ferlið með því að smella á „Panta Frágang“, slá inn sínar upplýsingar og senda svo pöntunina á mótaðila viðskiptanna til staðfestingar.

1. Ökutækjaferill, veðbönd og drög að kaupsamning

Það fyrsta sem Frágangur gerir þegar pöntun hefur verið greidd er að kanna stöðu ökutækisins og opinberra gjalda.  Ökutækjaferil og möguleg slysa/tjónasaga er síðan send á kaupanda og seljanda ásamt drögum að kaupsamningi. Þá er gengið úr skugga um að ökutækið sé veðbandalaust áður en gengið er frá viðskiptunum.

Sjá dæmi um gögn sem við skilum til kaupanda:

Artboard-1 (1).jpg
Artboard-1 (1).jpg

Slysaskrá

eigendaskipti-graph.png
Ökutækjaferill
bad6d7f098e8454c4bb9ccf747d7bff55171f8c4.png

2. Rafræn undirritun

Eftir að gögn úr ökutækjaskrá og drög að kaupsamning hafa verið afhent sendir Frágangur kaupsamning á kaupanda og seljanda. Ef ökutækið er í eigu fleiri en eins aðila er kaupsamningurinn einnig sendur á meðeiganda til undirritunar.

Eftir að umboðin hafa verið undirrituð getur Frágangur hafist handa og klárað allt ferlið án þess kaupandi eða seljandi þurfi að mæta og skrifa undir.

Eina undantekningin er ef kaupandi tekur bílalán með veðláni á fyrirtæki (ekki bílasamningur) hjá völdum lánastofnunum, þá þarf kaupandi að mæta til að undirrita.

Rafræn undirritun / umboð

3. Kaupsamningur og afsal

Það er gríðarlega mikilvægt fyrir bæði kaupanda og seljanda að kaupsamningur sé gerður vegna viðskiptanna. Það tryggir hagsmuni og réttarstöðu allra aðila ef eitthvað óvænt kemur upp seinna meir.

Allir helstu lánveitendur landsins fara fram á að löggiltir bifreiðasalar sjái um gerð kaupsamnings og afsals áður en lán er samþykkt. Hjá Frágangi starfa löggiltir bifreiðasalar með lánamiðlaraleyfi sem sjá til þess öll skjalavinnsla standist lög.

Hér má lesa nánari upplýsingar um kaupsamning, mikilvægi hans og sjá dæmi um hvernig kaupsamningur og afsal hjá Frágangi lítur út.

430ef071adf521d5bd6928d0ac733895339d29d3.png
Kaupsamningur og afsal
bad6d7f098e8454c4bb9ccf747d7bff55171f8c4.png

4. Fjármögnun

Valkvætt skref

Frágangur sér um að sækja um lán hjá þeim lánveitanda sem kaupandinn óskar eftir. Frágangur er með samstarfssamning við alla helstu lánveitendur landsins.

Hægt er að nota reiknivélina okkar til að sjá áætlaðar mánaðargreiðslur ásamt því að sjá hvar og hvernig lán hægt er að taka m.v. aldur bíls o.s.frv.

Fjármögnun

5. Tryggingaskráning

Frágangur sér um að skrá og afskrá tryggingar á þeim ökutækjum sem viðskiptin ná til. Kaupandi velur það tryggingafélag sem hann vill tryggja ökutækið hjá og Frágangur um að færa tryggingarnar yfir á nýjan eiganda ökutækisins.

Velji kaupandi að fjármagna ökutæki með bílasamningi eða bílaláni er gerð krafa um að ökutækið sé skráð með kaskótryggingu.

Hér má lesa nánari upplýsingar um tryggingar

8787c0be314554c31e381e746f0a59aebb213c70.png
Tryggingaskráning

Eigendaskipti

Að lokum sér Frágangur til þess að uppgjör bifreiðagjalda hafi verið gerð milli samningsaðila og tilkynnir um eigendaskiptin til Samgöngustofu. Athugið að ekki er öruggt að afhenda ökutækið fyrr en að eigendaskiptin hafa gengið í gegn.

Eigendaskipti
bottom of page